166 - Son Guðs ertu með sanni
Son Guðs ertu með sanni,
sonur Guðs, Jesús minn,
son Guðs, syndugum manni
sonar arf skenktir þinn,
son Guðs einn eingetinn.
Syni Guðs syngi glaður
sérhver lifandi maður
heiður í hvert eitt sinn.
Höfundur lags: Þýskt lag
Höfundur texta: Hallgrímur Pétursson