105 - Nú gjalla klukkur
Nú gjalla klukkur glöðum hreim,
er Guðs son fæddist þessum heim
og færði mönnum fegurst jól
með friðar bjartri kærleiks sól.
Í anda sælir sjáum vér,
hvar sveinn í jötu refður er
og heyrum engla hljóm við ský
og hjarðarsveina ljóðin ný.
Höfundur lags: C. Balle
Höfundur texta: Steingrímur Thorsteinsson