89 - Englakór frá himnahöll

Englakór frá himnahöll
hljómar yfir víða jörð
enduróma fold og fjöll
flytja glaða þakkargjörð.
Gloria in excelsis Deo.
Gloria in excelsis Deo.

Hirðar, hví er hátíð nú,
hví er loftið fullt af söng?
Hver er fregnin helga sú,
er heyrir vetrar nóttin löng?
Gloria in excelsis Deo.
Gloria in excelsis Deo.

Kom, í Betlehem er hann,
heill sem allri veröld fær.
Kom í lágan lítinn rann,
lausnara þínum krjúptu nær.
Gloria in excelsis deo.
Gloria in excelsis deo.


Höfundur lags: Frakkneskt lag
Höfundur texta: Jakob Jónsson

Hefur þú athugasemdir eða tillögur? Sendu okkur póst hér!

© 2020-2024 Kirkja sjöunda dags aðventista
Höfundarréttur texta í eigu viðeigandi höfunda og útgáfuaðila