87 - Þú, ljóssins Herra

Þú, ljóssins Herra, leiðir mig.
Mitt líf er jafnan tengt við þig
Og hvert sem liggur leiðin mín,
mig leiðir styrka höndin þín.

Þú, ljóssins Drottinn, leiðir mig,
Því lofa vil af hjarta þig.
Þín milda höndin hjálp mín er.
Því hlýði ég og fylgi þér.


Hve dásöm huggun himnum frá,
að hönd þín, Guð, mér hvílir á.
Þó harmsins öldur græði geð,
minn Guð, ég veit að þú ert með.

Af heitri gleði hjartað slær.
Minn Herra, þú er einnig nær.
Já, hvað sem gerast kann um stig,
þín kærleiks höndin leiðir mig.

Þá ævi mín á enda'er skráð
með unnum sigri'af þinni náð,
ei dauðans höndin hræðir mig,
því hönd þín, Drottinn, leiðir mig.


Höfundur lags: W. B. Bradbury
Höfundur texta: Björk

Hefur þú athugasemdir eða tillögur? Sendu okkur póst hér!

© 2020-2024 Kirkja sjöunda dags aðventista
Höfundarréttur texta í eigu viðeigandi höfunda og útgáfuaðila