86 - Þú, hæsti Guð

Þú hæsti Guð ert hirðir minn.
Mitt hjarta daprast eigi,
því mildi, ást og máttur þinn
er mitt á hverjum degi.

Þú leiðir mig að lindum vatns,
sem lífi tilgang gefa.
Þinn kraftur veitir styrk til starfs,
hann stöðvar synd og efa.

Hve oft ég fór minn eigin veg
mig ást þín sífellt leiddi.
Nú fagna ég í fylgd með þér
þinn friður hörmum eyddi.

Með þig við hlið, um dauðans dal
ei daprast skal minn hugur.
Við sprota þinn og styrkan staf
ég styrkist, vaknar dugur.

Og náð þín mun um eilíf ár
mig áfram sífellt bera.
Þér syng ég lof, því fögnuð fann
og fylling lífs þig vera.


Höfundur lags: Followers
Höfundur texta: 23. Davíðssálmur - Björk aðhæfði

Hefur þú athugasemdir eða tillögur? Sendu okkur póst hér!

© 2020-2024 Kirkja sjöunda dags aðventista
Höfundarréttur texta í eigu viðeigandi höfunda og útgáfuaðila