83 - Ó, vef mig vængjum þínum

Ó, vef mig vængjum þínum
til verndar, Jesú hér,
og ljúfa hvíld mér ljáðu
þótt lánið breyti sér.
Vert þú mér allt í öllu,
mín æðsta speki’ og ráð,
og lát um lífsins daga
mig lifa’ af hreinni náð.

Tak burtu brot og syndir
með blóði, Jesú minn,
og hreint mér gefðu hjarta
og helgan vilja þinn.
Mig geym í gæslu þinn.
Mín gæti náð þín blíð,
og frið og hvíld mér færi
hin fagra næturtíð.


Höfundur lags: Sænskt þjóðlag
Höfundur texta: Magnús Runólfsson

Hefur þú athugasemdir eða tillögur? Sendu okkur póst hér!

© 2020-2024 Kirkja sjöunda dags aðventista
Höfundarréttur texta í eigu viðeigandi höfunda og útgáfuaðila