82 - Vertu, Guð faðir, faðir minn

Vertu, Guð faðir, faðir minn,
í frelsarans Jesú nafni,
hönd þín leiði mig út og inn,
svo allri synd ég hafni.

Höndin þín, Drottinn, hlífi mér,
þá heims ég aðstoð missi,
en nær sem þú mig hirtir hér,
hönd þína' eg glaður kyssi.

Dauðans stríð af þín heilög hönd
hjálpi mér vel að þreyja,
meðtak þá, faðir, mína önd,
mun ég svo glaður deyja.

Minn Jesús, andlátsorðið þitt
í mínu hjarta' eg geymi,
sé það og líka síðast mitt,
þá sofna' eg burt úr heimi.


Höfundur lags: Danskt lag
Höfundur texta: Hallgrímur Pétursson

Hefur þú athugasemdir eða tillögur? Sendu okkur póst hér!

© 2020-2024 Kirkja sjöunda dags aðventista
Höfundarréttur texta í eigu viðeigandi höfunda og útgáfuaðila