6 - Allt sem fagurt finnst

Allt sem fagurt finnst og hreint
á jörð og himnum hátt
skapaði vor góði Guð
og gjörði allt stórt og smátt.


Smáblómin öll, sem anga
og fagran fuglasöng,
þeir svífa' á vængjum sínum hátt
og syngja dægrin löng.

Sólroðin fögur fjöllin,
Og fossandi læki' og ár
Og sólarljóssins litaskrúð,
Svo ljómar himinn blár.

Þann kalda vetrar vindinn
og varma sumarsól
og ávextina alla
sem öll vor jarðarból.

Hann gaf oss tungu' að tala
og augu allt að sjá,
og varir til að vitna,
hve viska Guðs er há.


Höfundur lags: Enskt lag
Höfundur texta: Jón Hj. Jónsson

Hefur þú athugasemdir eða tillögur? Sendu okkur póst hér!

© 2020-2024 Kirkja sjöunda dags aðventista
Höfundarréttur texta í eigu viðeigandi höfunda og útgáfuaðila