79 - Leið oss mikli himna Herra

Leið oss mikli himna Herra
heim í dýrðar þinnar land,
Veikum alvalds hald í hendi,
Hindra sérhvert búið grand.
Helgi andi, Helgi andi
vernda oss til komu Krists,
vernda oss fram til komu Krists.

Opna Síons ljúfu lindir,
Lát oss blessun draga'úr þeim,
Elds og skýjastólpann sterka
stefnu marka til þín heim.
Lausnar Herra, lausnar Herra,
lát oss dýrðardaginn sjá,
dýrðar þinnar daginn sjá.

Hugarstilling, Herra, veit oss,
Heimurinn þá skjálfa fer.
Dómar þínir þungt er falla,
þá í Síon borg oss ver.
Lát þar hljóma lofsöngsóma,
lofsöngva til dýrðar þér,
lofsöngsóð til dýrðar þér.


Höfundur lags: J. Hughes
Höfundur texta: Jón Hj. Jónsson

Hefur þú athugasemdir eða tillögur? Sendu okkur póst hér!

© 2020-2024 Kirkja sjöunda dags aðventista
Höfundarréttur texta í eigu viðeigandi höfunda og útgáfuaðila