77 - Ó, Herra Guð, þér heiður ber

Ó, Herra Guð, þér heiður ber,
mitt hjarta lofgjörð flytur þér.
Þú annast minn æ hefur hag,
þín hönd mig geymdi nótt og dag.

Þá réttum vegi veik ég frá
og villtist lasta brautir á,
þín föðurgæska guðdómleg
mér greiddi' að nýju réttan veg.

Þá huggun þráði hjarta mitt,
þú huldir stundum auglit þitt.
Þó lést þú aldrei einan mig,
og aftur náð þín birti sig.

Ég alla blessun þakka þér,
sem þinnar líknar vottur er,
en einkum glaður þakka' eg það,
að þú sem barn mig tókst þér að.


Höfundur lags: J. A. P. Schulz
Höfundur texta: Valdimar Briem

Hefur þú athugasemdir eða tillögur? Sendu okkur póst hér!

© 2020-2024 Kirkja sjöunda dags aðventista
Höfundarréttur texta í eigu viðeigandi höfunda og útgáfuaðila