75 - Guð, allur heimur

Guð, allur heimur, eins í lágu' og háu,
er opin bók, um þig er fræðir mig,
já, hvert eitt blað á blómi jarðar smáu
er blað, sem margt er skrifað á um þig.

Þá morgunsólin upp í austri stígur,
á æðra himinljós hún bendir mér,
og þá er sólin hægt í vestri hnígur,
á hvíld og frið hún bendir mér hjá þér.

Þá allt til lífsins vorið fagra vekur,
það von til þín í brjósti glæðir mér,
og þegar aftur hausta' og húma tekur,
það hvetur mig að leita skjóls hjá þér.

Þá yfir löndin stormur geisar stríður,
með sterkum róm hann boðar almátt þinn,
og þá um vanga blærinn leikur blíður,
hann boðar þú sért ljúfur faðir minn.

Þá eldur skær með björtum loga brennur,
hann birtir skýrt, að heit þín gæskan er
og svalalind, er sífellt áfram rennur,
hún sýnir, að þín miskunn aldrei þver.

Þá heyri eg glaða himinfugla syngja,
þeir hrósa þinni dýrð, sem öllum skín,
og andvörp þau, er einatt hjörtun þyngja,
þó upp um síðir leita, Guð, til þín.

Ó, veit mér, Guð, þín verk ég skoða megi,
þau veri jafnan hjartans unun mín.
Og þótt þín hátign holdið stundum beygi,
mitt hjarta reisir aftur náðin þín.


Höfundur lags: A. P. Berggreen
Höfundur texta: Valdimar Briem

Hefur þú athugasemdir eða tillögur? Sendu okkur póst hér!

© 2020-2024 Kirkja sjöunda dags aðventista
Höfundarréttur texta í eigu viðeigandi höfunda og útgáfuaðila