72 - Undrið allra mest

Ég hef alls engin orð til að lýsa
þér eilífa kærleikans mynd,
sem fórnaðir öllu, sem fórnað varð
til að frelsa frá dauða og synd.

Ó, það undur allra mest,
það undrið allra mest,
að ég veit, Guð elskar mig.
Ó, það undur allra mest,
það undrið allra mest,
að ég veit, Guð elskar mig.


Þú lömuðum lífskraftinn veitir,
í ljós fær þú myrkrinu breytt,
þeir daufu hjá þér öðlast dýrðlega sýn,
þeim dauðu þú líf getur veitt.

Því höggdofa stend ég og stari
með stamandi tungu svo þrátt,
er ég horfi og sé þetta heilaga vald,
þennan himneska, eilífa mátt.


Höfundur lags: G. B. Shea
Höfundur texta: Jón Hj. Jónsson

Hefur þú athugasemdir eða tillögur? Sendu okkur póst hér!

© 2020-2024 Kirkja sjöunda dags aðventista
Höfundarréttur texta í eigu viðeigandi höfunda og útgáfuaðila