71 - Ó, Guð, vor hjálp

Ó, Guð, vor hjálp um ár og öld,
um eilífð huggarinn.
Þú mildar ævikjörin köld
og kærleik býður þinn.

Þín náðin, Drottinn, næg oss er,
Þín nálægð örugg hlíf.
Þín almáttshönd, það vitum vér,
slær vernd um allt vort líf.

Áður en fjöllin urðu til
og ásýnd fengu lönd,
varst þú og ert um aldabil,
um eilífð líknarhönd.

Sjá þúsund árin eru þér
sem aftanstundar brís,
svo fleyg, sem afturelding fer,
þá ársól fögur rís.

Guð feðra vorra fyrr á tíð,
þín forsjá aldrei dvín.
Þú léttir allt vort lífsins stríð,
oss leiðir heim til þín.


Höfundur lags: W. Croft
Höfundur texta: Pétur Sigurðsson

Hefur þú athugasemdir eða tillögur? Sendu okkur póst hér!

© 2020-2024 Kirkja sjöunda dags aðventista
Höfundarréttur texta í eigu viðeigandi höfunda og útgáfuaðila