68 - Guð, þín elska

Guð, þín elska, undrið stærst,
Unun himins, birtist hér.
Ger þinn bústað, Guð, vort hjarta,
gjörvallt líf vort helga þér.
Krýn oss náðarkrafti þínum,
kenn oss sjá þín máttarverk.
Engin takmörk ást þín hefur
og þín samúð hrein og sterk.

Anda, Jesús, elsku þinni
inn í hjörtu full af neyð,
Þeirra'er titra undan ánauð,
Eða hafa villst af leið.
Gef þú verðir upphaf, endir
alls, sem líf vort skynja má.
Tak í burtu tilhneigingar,
títt sem leiða burt þér frá.


Höfundur lags: J. Zundel
Höfundur texta: Björk

Hefur þú athugasemdir eða tillögur? Sendu okkur póst hér!

© 2020-2024 Kirkja sjöunda dags aðventista
Höfundarréttur texta í eigu viðeigandi höfunda og útgáfuaðila