66 - Vor feðra Guð

Vor feðra Guð, þón voldug máttarhönd
Veglega hnýtti alheims stjörnubönd.
Þú vísar leið um himingeimsins göng
göfgum og lofum þig í vorum söng.

Ástríkri mund þú ávallt hefur leitt,
Umhyggju' og miskunn ríkulega veitt.
Guð, þú vort eina óbrigðula ráð.
Orð þitt æ vísar veg að þinni náð.

Vertu, ó Guð, oss vörn á ógnartíð.
Vertu oss hjálp er geysa jarðarstríð.
Vertu æ nær og auk þú innri trú.
Ómælis Guð, í hjörtum vorum bú.

Vertu oss ljós, þú sem í ljósi býrð,
leið oss úr myrkri' í endalausa dýrð.
Hjartnæma þökk nú hefji tunga hver.
Heiður og vegsemd færum Drottinn þér.


Höfundur lags: G. W. Warren
Höfundur texta: Árni Hólm

Hefur þú athugasemdir eða tillögur? Sendu okkur póst hér!

© 2020-2024 Kirkja sjöunda dags aðventista
Höfundarréttur texta í eigu viðeigandi höfunda og útgáfuaðila