55 - Dýrð sé Guði' á himna hæðum

Dýrð sé Guði' á himna hæðum,
hann oss friðinn gaf á jörð
og með náðar æðstu gæðum
auðga vill oss, a hjörð.
Dýrð sé Guði, hann oss hefur
helgan son af miskunn sent,
lífs er veg fékk lýðum kennt,
og oss sekum sælu gefur.
Dýrð sé Guði, himneskt hnoss
heilags anda veitt er oss.


Höfundur lags: C. E. F. Weyse
Höfundur texta: Helgi Hálfdánarson

Hefur þú athugasemdir eða tillögur? Sendu okkur póst hér!

© 2020-2024 Kirkja sjöunda dags aðventista
Höfundarréttur texta í eigu viðeigandi höfunda og útgáfuaðila