54 - Drottinn, ó, Drottinn vor

Drottinn, ó, Drottinn vor,
dagarnir líða,
allt er að breytast, aldrei þú.
Ver þú oss veikum hjá,
vernda þína arfleifð.
Líknandi hendi, ó, leið oss nú.

Drottinn, ó, Drottinn vor,
drag oss æ nær þér,
lífið hið eina' er hjá einum þér.
Þar veitir þú oss frið,
þróttinn til að lifa,
sigurvon eilífa eignumst vér.

Drottinn, ó, Drottinn vor,
dýrð þína að efla,
göfga þig einan æ gef oss náð,
vinna þitt verk á jörð,
vera þér til dýrðar,
vegsama nafn þitt um lög og láð.


Höfundur lags: A. Lwoff
Höfundur texta: Níels Steingrímur Thorláksson

Hefur þú athugasemdir eða tillögur? Sendu okkur póst hér!

© 2020-2024 Kirkja sjöunda dags aðventista
Höfundarréttur texta í eigu viðeigandi höfunda og útgáfuaðila