53 - Guð hefur talað

Fyrir spámenn flutti Drottinn föllnum heimi náðarorð
aldaraðir allra tíma yfir himna, höf og storð.
Veldi hans á hátíð sannri hagga enginn máttur kann
Guð er æðstur, Guð er mestur, Guð er fyrstur síðstur hann.

Gegnum soninn Guð sig birti gjörla' í fylling hér á jörð.
Eðlið guðdóms allt hann sýndi allri vorri barnahjörð.
Leikur ei á tveimur tungum tign og mátturskaparans
Afsökun er engin fundin efagirni syndugs manns.

Helgur andi hefur vitnað hátíð guðs í vitund manns,
allar aldir orð hans boðað öllum þjóðum víst til sanns.
Trúin stendur stöðug, voldug, sterk og hvergi haggast kann.
Guð er Drottinn, orð hans eilíft, öllu fyrri, síðstur hann.


Höfundur lags: T. J. Williams
Höfundur texta: Jón Hj. Jónsson

Hefur þú athugasemdir eða tillögur? Sendu okkur póst hér!

© 2020-2024 Kirkja sjöunda dags aðventista
Höfundarréttur texta í eigu viðeigandi höfunda og útgáfuaðila