49 - Nú kveðjum blíðan Drottins dag

Nú kveðjum blíðan Drottins dag
við dýrðarfagurt sólarlag
og þökkum heilu hjarta af
þá hvíld sem þessi dagur gaf.

Vér þökkum gæsku gjafarans
og gleðjumst yfir blessun hans.
Þótt dimman byrgi dagsins sól,
er Drottinn sínum öruggt skjól.

Ó, veittu Drottinn þjáðum þrótt,
og þreyttum öllum hvíld í nótt.
Og látum þína litlu hjörð
þinn ljóssins engil halda vörð.


Höfundur lags: L. Bourgeois
Höfundur texta: Pétur Sigurðsson

Hefur þú athugasemdir eða tillögur? Sendu okkur póst hér!

© 2020-2024 Kirkja sjöunda dags aðventista
Höfundarréttur texta í eigu viðeigandi höfunda og útgáfuaðila