48 - Hröðum degi hallar

Hröðum degi hallar,
húma tekur ótt.
Birtuvaldur blíður
býður góða nótt.

Englar einir vaki,
aldrei víki frá,
björtum vængjum blaki
beði minu hjá.

Guð minn, þreyttum gefðu
Góða hvíld og værð.
Vakni sæl af svefni
sál mín endurnærð.


Höfundur lags: J. Barnby
Höfundur texta: Pétur Sigurðsson

Hefur þú athugasemdir eða tillögur? Sendu okkur póst hér!

© 2020-2024 Kirkja sjöunda dags aðventista
Höfundarréttur texta í eigu viðeigandi höfunda og útgáfuaðila