46 - Kyrrð er öllu yfir

Kyrrð er öllu yfir.
Eg mér sný til þín.
Lít þú, Guð sem lifir,
ljúft í náð til mín.

Náðarorð þitt nærir
niðurbeygða sál,
sekum friðan færir,
frelsis talar mál.

Eg vil hljóður hlýða,
Hlið eg himins sé,
bænheyrslunnar bíða,
Beygja hjartans kné.


Höfundur lags: H. Green
Höfundur texta: Jón Hj. Jónsson

Hefur þú athugasemdir eða tillögur? Sendu okkur póst hér!

© 2020-2024 Kirkja sjöunda dags aðventista
Höfundarréttur texta í eigu viðeigandi höfunda og útgáfuaðila