41 - Svo hátt, svo hátt

Svo hátt, svo hátt, að himnar taki undir,
þér hefja vil ég lofsöng, Drottinn minn,
og allar verur allar heimsins stundir
um allan geiminn mikli kærleik þinn.

Svo djúpt, svo djúpt, að undirdjúpin ómi
um elsku'og mátt þinn, Guð, ég syngja vil.
Í djúpi hafs og djúpi sálna hljómi
þér dýrðarsöngur enda heimsins til.

Svo blítt, svo blítt, að veröld vikna hljóti,
mér veit, ó, Guð, að syngja' um þína dýrð,
og allar sálir unaðssælu njóti,
sem ekki verður neinni tungu skýrð.


Höfundur lags: A. P. Berggreen
Höfundur texta: Arnór Þorláksson

Hefur þú athugasemdir eða tillögur? Sendu okkur póst hér!

© 2020-2024 Kirkja sjöunda dags aðventista
Höfundarréttur texta í eigu viðeigandi höfunda og útgáfuaðila