40 - Sjá, ó, Jesús, saman vér

Sjá, ó, Jesús, saman vér
söfnumst nú þitt or að heyra,
opnast lát þú helgan hér
himinfræðum sál og eyra,
himin þinn að í sér inni
og þig sjálfan hjörtun finni.

Myrkri hjúpað hugskot er,
heims er æ á vegum reikar.
Andi þinn ef ljós ei lér,
langt af vegi mannvit skekar.
Gott að hugsum, gott að iðjum,
gef oss styrk, er hér þig biðjum.

Ó, þú ljóminn dýrðar dýr,
dreif þú villumyrkri svarta,
veit, að sálarsjónin skýr
sannleiks mæti ljósi bjarta,
söng vorn, bæn og athöfn alla
elsku merki hrein þú kalla.


Höfundur lags: J. R. Ahle
Höfundur texta: Helgi Hálfdánarson

Hefur þú athugasemdir eða tillögur? Sendu okkur póst hér!

© 2020-2024 Kirkja sjöunda dags aðventista
Höfundarréttur texta í eigu viðeigandi höfunda og útgáfuaðila