7 - Kom til mín

Ó styð þig ei við sterkan mann,
því stafur brotinn reynist hann.
Og þeim sem treystir sjálfum sér
sjálfsblekkingin hættust er.
Mátt og leiðsögn máttu fá
mest ef Guð þinn treystir á.
Sá viður sem er vötnum hjá
vorgrænn sífellt reynast má.

Sjá, Kristur segir: „Kom til mín”,
hann kallar þig í dag til sín
og býður þér að blómstra’ í sér.
Blóðið hans þess trygging er.
Jesús aldrei orð sitt sleit.
Ávallt stenst hans fyrirheit.
Svo treystu Drottni treystu því
og teygðu rætur vatnið í.


Höfundur lags: R. Vaughan Williams, A. Somervell raddsetti
Höfundur texta: Jón Hj. Stefánsson

Hefur þú athugasemdir eða tillögur? Sendu okkur póst hér!

© 2020-2024 Kirkja sjöunda dags aðventista
Höfundarréttur texta í eigu viðeigandi höfunda og útgáfuaðila