5 - Guð Abrahams

Lof sé Guði' Abrahams! í altign himna ranns,
Kónginum allra eilífða og kærleians.
Hið mikla nafn: "ÉG ER"! Jehóva æðstur ber.
Því helga nafni lútum lágt og lofum vér.

Lof sé Guði' Abrahams! og eftir boði hans
ég heiminn kveð að höndla fögnuð himna ranns.
Frægð heims, völd, vizku' og fé ég virði fánýtt sé.
Aleigu mína' og líf ég Guði læt í té.

Þú, sigursæla fjöld, syng Guði þakkar gjöld.
Hyll Föður, Son og Helgan anda öld af öld.
Hyll Abrahams Guð og minn! ég geng í lofsönginn.
Allt valt og tign um eilífð sé þér, Drottinn minn.


Höfundur lags: Hebreskt lag
Höfundur texta: Jón Hj. Jónsson

Hefur þú athugasemdir eða tillögur? Sendu okkur póst hér!

© 2020-2024 Kirkja sjöunda dags aðventista
Höfundarréttur texta í eigu viðeigandi höfunda og útgáfuaðila