2 - Hefjið krossinn (Mótsöngur 1999)

Hefjið upp Jesú kross og kærleikann,
unz gjörvöll lönd og lýðir lofa hann.


Komið, þér kristnir, fetið fótspor hans,
fagnandi sigri Sonar Guðs og manns.

Undir hans sigurmerki sækjum vér.
Hersveitir Guðs til sigurs fylkja sér.

Nýborir hermenn Herrans, einn og hver
helgaðir köllun sinni eins og ber.

Ó, Herra, eitt sinn hafinn upp á tré
hríf oss nú alla í þín heilög vé.

Þannig sé sigursöngur vor um hann,
á kvala krossi' er öllum sigur vann.


Höfundur lags: S. H. Nicholson
Höfundur texta: Jón Hj. Jónsson

Hefur þú athugasemdir eða tillögur? Sendu okkur póst hér!

© 2020-2024 Kirkja sjöunda dags aðventista
Höfundarréttur texta í eigu viðeigandi höfunda og útgáfuaðila