346 - Helgaðu Jesú þitt líf

Hvert sem um heiminn mun liggja þín leið
ljóst mun þér verða í gleði og neyð:
Drottinn mun annast þinn daglega hag
djarfur, ef gengur með honum hvern dag.
Helgaðu honum hug þinn og krafta,
helgaðu honum, helgaðu Jesú þitt líf.


Hugleiddu vandlega heimslegan sið
hugur þinn fljótlega kannast mun við.
Einasta von þín um andlegan hag
er, að þú felir þig Jesús hvern dag.
Helgaðu honum hug þinn og krafta,
helgaðu honum, helgaðu Jesú þitt líf.


Sagt er að Kristur komi nú brátt,
komi á óvart sem þjófur um nátt.
Einasta von þín um eilífðarhag
er, að þú felir þig Jesús hvern dag.
Helgaðu honum hug þinn og krafta,
helgaðu honum, helgaðu Jesú þitt líf.
helgaðu honum hug þinn og krafta,
helgaðu honum, helgaðu honum þitt líf.



Höfundur lags: Árni Hólm
Höfundur texta: Árni Hólm

Hefur þú athugasemdir eða tillögur? Sendu okkur póst hér!

© 2020-2024 Kirkja sjöunda dags aðventista
Höfundarréttur texta í eigu viðeigandi höfunda og útgáfuaðila