392 - Hver er mestur?

Hver er mestur yðar allra?
Ekki sá, sem mest á til,
heldur sá, sem Guði geðjast,
gjörir honum flest í vil.
Sá á mest af sönnum auði,
sem á mestan kærleikann.
Sá er mestur, sem er bestur,
sannarlega það er hann.

Hver er mestur allra yðar?
Ekki sá, sem stendur hæst,
heldur sá, sem hógvær reynist,
hann er sínum Guði næst.
Sá á mestan sóma skilið,
sem á anda hógværan.
Sá er mestur, sem er bestur,
sannarlega það er hann.

Hver er yðar allra mestur?
ekki sá, sem vit ber mest;
heldur sá, sem hjartaprúður
hagar sér og reynist best;
sá, sem blíður elskar alla,
einkum Guð og frelsarann.
Sá er mestur, sem er bestur,
sannarlega það er hann.


Höfundur lags: C. C. Converse
Höfundur texta: Valdimar Briem

Hefur þú athugasemdir eða tillögur? Sendu okkur póst hér!

© 2020-2024 Kirkja sjöunda dags aðventista
Höfundarréttur texta í eigu viðeigandi höfunda og útgáfuaðila