38 - Þig, Guð, vor Drottinn

Þig, Guð, vor Drottinn, göfgum vér,
ó, Guð, vér þakkir segjum þér.
Þig, faðir æðstur, Herra hár,
öll heimsbyggð lofar síð og ár.

Þú heilagur ert, Herra Guð,
þú heilagur ert, mikli Guð,
þú heilagur ert, góði Guð,
þú Guð allsherjar, Drottinn Guð.

Þig, faðir hár á himna stól,
og hirðinn góða, Krist, vort skjól,
og andann helga, huggarann,
þitt heiðrar fólk sem best það kann.

Þú, mikli Guð, oss miskunn sýn,
vér mænum, Guð í von til þín,
ó, þyrm oss, Guð, og glötun ver,
ó, Guð, vort traust er allt á þér.


Höfundur lags: L. Bourgeois
Höfundur texta: Helgi Hálfdánarson

Hefur þú athugasemdir eða tillögur? Sendu okkur póst hér!

© 2020-2024 Kirkja sjöunda dags aðventista
Höfundarréttur texta í eigu viðeigandi höfunda og útgáfuaðila