455 - Þú, guðleg ást

Þú guðleg ást, sem öllu ofar stendur,
af æðsta guða kærleikssprottin rót,
er tengir saman hjörtu hugi' og hendur
og hefur jarðarlífið Guði mót.

Þú guðleg ást, lát æðstu verund þína
þeim efla trúar styrk í sælu hag,
lát aldrei kærleiks trúartraustið dvína,
sem tendrað er og staðfest hér í dag.

Fjarlægðu alla sorg og þungar þrautir,
þann veittu frið, er stillir vanda' og stríð.
Leið þessi brúðhjón lífsins gæfu brautir
í ljósi hamingjunnar alla tíð.


Höfundur lags: J. Barnby
Höfundur texta: Jón Hj. Jónsson

Hefur þú athugasemdir eða tillögur? Sendu okkur póst hér!

© 2020-2024 Kirkja sjöunda dags aðventista
Höfundarréttur texta í eigu viðeigandi höfunda og útgáfuaðila