450 - Dýrlegt kemur sumar

Dýrðlegt kemur sumar með sól og blóm,
senn fer allt að vakna með lofsöngsróm,
vængjaþytur heyrist í himingeim,
hýrnar yfir landi' af þeim fuglasveim.

Hærra' og hærra stígur á himinból
hetjan lífsins sterka hin milda sól,
geislastraumum hellir á höf og fjöll,
hlær, svo roðna vellir og bráðnar mjöll.

Gróðurmagnað lífsaflið leysist skjótt,
læsir sig um fræin, er sváfu rótt,
vakna þau af blundi' og sér bylta í mold,
blessa Guð um leið og þau rísa úr fold.

Guði' sé lof, er sumarið gefur blítt,
gefur líka' í hjörtunum sumar nýtt,
taka' að vaxa ávextir andans brátt,
eilíf þar sem náðin fær vöxt og mátt.

Blessuð sumardýrðin um láð og lá
lífsins færir boðskap oss himnum frá:
"Vakna þú, sem sefur, því sumar skjótt
sigrað kuldann hefur og vetrarnótt"


Höfundur lags: L. Nielsen
Höfundur texta: Friðrik Friðriksson

Hefur þú athugasemdir eða tillögur? Sendu okkur póst hér!

© 2020-2024 Kirkja sjöunda dags aðventista
Höfundarréttur texta í eigu viðeigandi höfunda og útgáfuaðila