436 - Vak yfir veraldar löndum

Vak yfir veraldar löndum.
Vernda hvern jarðneskan gest.
Gimsteina' úr guðlegum höndum
geyma lát þú okkur best.

Höfundur himna,
helga þú sérhverja tíð.
Blessa þú blóm vorrar jarðar,
blessa þú æskunnar lýð.


Þann sem er ungur að árum,
efl þú að þroska og dáð.
Lækning við sérhverjum sárum
séu þín guðlegu ráð.

Verða lát vegmóðum færan
veg þinn um gæfunnar lönd.
Lampa þinn ljómandi skæran
legg þú í unglingsins hönd.

Boða þú æskulýð öllum:
Utan við hrjóstur og sand
Frítt er á spámannsins fjöllum,
fagurt hið heilaga land.


Höfundur lags: J. Mc Granahan
Höfundur texta: Helgi Sveinsson

Hefur þú athugasemdir eða tillögur? Sendu okkur póst hér!

© 2020-2024 Kirkja sjöunda dags aðventista
Höfundarréttur texta í eigu viðeigandi höfunda og útgáfuaðila