431 - Faðir barnanna

Faðir barnanna, faðir stjarnanna,
faðir blómanna björtu.
Barnsleg í anda, börn þín hér standa.
Þér vér helgum vor hjörtu.

Faðir sannleikans, faðir kærleikans,
faðir görvalls hins góða.
Lát þú oss læra lof þér að færa,
líf og lausnari þjóða.

Faðir gleðinnar, faðir sælunnar.
Blessa barnanna raðir.
Í þínum anda æ lát oss standa.
Abba, ástkæri faðir.


Höfundur lags: Þjóðlag frá Sikiley
Höfundur texta: Valdimar Briem

Hefur þú athugasemdir eða tillögur? Sendu okkur póst hér!

© 2020-2024 Kirkja sjöunda dags aðventista
Höfundarréttur texta í eigu viðeigandi höfunda og útgáfuaðila