429 - Ég er ekki' of lítill

Ég er ekki' of lítill,
ástarfaðir kær,
þig að iðka og elska
ástarboð þín skær.

Ég er ekki' of lítill,
að ég, Jesús minn,
lambið Guðs hið góða,
gjöri vilja þinn.

Ég er ekki' of lítill,
orð að heyra þín,
biðja, syngja söngva,
syngja versin mín.

Ég er ekki' of lítill,
að ég sýni dyggð,
foreldrum og frændum
fulla hlýðni' og tryggð.


Höfundur lags: Höf. ókunnur
Höfundur texta: Höf. ókunnur

Hefur þú athugasemdir eða tillögur? Sendu okkur póst hér!

© 2020-2024 Kirkja sjöunda dags aðventista
Höfundarréttur texta í eigu viðeigandi höfunda og útgáfuaðila