428 - Viltu starfa og stríða með Jesú?

Viltu starfa og stríða með Jesú?
Viltu standa við frelsarans hlið,
þjóna honum í athöfn og orði,
boða örmæddum sálum hans frið?

Algóði lausnari, lát þú mig hér
lifa til dýrðar og vegsemdar þér.
Þinn vil ég vera, þolgóður bera
krossinn og vitna um kærleik þinn hér.


Viltu lifa og líða með Jesú?
Viltu leiða frá glötun og neyð
þá, sem ráfa í syndanna sorta
benda sálum á friðarins leið?

Viltu hrópa til heimsins með Jesú:
Guð vill hjálpa þeim sálum, er þjást,
inn í frelsið og ljósið og lífið
vill þær leiða hans guðdómleg ást?


Höfundur lags: H. G. Smyth
Höfundur texta: Sigurbjörn Sveinsson

Hefur þú athugasemdir eða tillögur? Sendu okkur póst hér!

© 2020-2024 Kirkja sjöunda dags aðventista
Höfundarréttur texta í eigu viðeigandi höfunda og útgáfuaðila