35 - Guð minn gæti þín

Vertu sæll, og Guð minn gæti þín,
Leiði þig með línarhendi,
Lífsins brauð af himnum sendi.
Vertu sæll, og Guð minn gæti þín.

Guð minn gæti þín, gæti þín,
Uns vér hittumst annað sinn.
Guð minn gæti þín, gæti þín.
Vertu sæll, og Guð minn gæti þín.


Vertu sæll, og Guð minn gæti þín,
blíðuvæng og blessun sína
breiði yfir hagi þína.
Vertu sæll, og Guð minn gæti þín.

Vertu sæll og Guð minn gæti þín,
um þig vefji örmum sínum,
öllum létti raunum þínum.
Vertu sæll, og Guð minn gæti þín.

Vertu sæll, og Guð minn gæti þín,
Vaki yfir vegferð þinni,
Verndi þig með návist sinni.
Vertu sæll, og Guð minn gæti þín.


Höfundur lags: W. G. Tomer
Höfundur texta: Pétur Sigurðsson

Hefur þú athugasemdir eða tillögur? Sendu okkur póst hér!

© 2020-2024 Kirkja sjöunda dags aðventista
Höfundarréttur texta í eigu viðeigandi höfunda og útgáfuaðila