427 - Þú, Drottinn allra alda

Þú, Drottinn allra alda,
Oss áfram leið þá braut,
færir fram til sigurs
í fögnuði og þraut,
og hefji Herrans merki
í himins dýrðar glans
og vitnisburður verði
í vitund sérhvers manns.

Leið, Drottinn allra alda,
því ótrautt fylgjum vér.
Oss sigur kraftinn sendu
að sigra allt með þér.
Und krossins tigna tákni
þú tryggir sókn og vörn.
Leið fram til fremsta sigurs
og frelsa öll þín börn.

Leið, Drottinn allra alda,
svo ógnum linni senn
og vígaferla fári, sem
friði rænir menn.
"Því ei með orðsins valdi
né illum vopna klið."
Þitt konungsríki kemur
með kærleik, náð og frið.


Höfundur lags: H. Smart
Höfundur texta: Jón Hj. Jónsson

Hefur þú athugasemdir eða tillögur? Sendu okkur póst hér!

© 2020-2024 Kirkja sjöunda dags aðventista
Höfundarréttur texta í eigu viðeigandi höfunda og útgáfuaðila