418 - Herrans ungar hetjur!

Herrans ungar hetjur!
Heyrið Drottins mál.
Kóngur himna kallar
hverja unga sál:
Verkamenn í víngarð
vantar mig að fá.
Guð á mátt og megin
meira en nóg að ljá.

Þeim, er fjötrið fanga
frelsis boðið hrós.
Þar, sem myrkrið magnast
meira veitið ljós.
Þeim, er byrðar buga,
boðið skjótt mér frá:
Guð á mátt og megin
meira en nóg að ljá.

Þeim, er neyðin nístir,
náðar flytjið orð.
Heimsins hugur seður
Herrans gnægtarborð.
Þeim er syndir særa
segið öllum frá:
Guð á mátt og megin
meira en nóg að ljá.


Höfundur lags: D. F. Haynes
Höfundur texta: Jón Hj. Jónsson

Hefur þú athugasemdir eða tillögur? Sendu okkur póst hér!

© 2020-2024 Kirkja sjöunda dags aðventista
Höfundarréttur texta í eigu viðeigandi höfunda og útgáfuaðila