413 - Einn og alla Kristur kallar

Einn og alla Kristur kallar:
"Komið, fylgið mér.
Berjist undir mínu merki
meðan dagur er"

Komum, helgum hirði vorum
hjarta vort og líf,
því hann og enginn annar
er í stríði hlíf.


Einn og alla Kristur kallar:
"Komið, lítið á
hvíta akra, verkmenn vantar,
vinni hver sem má."

Einn og alla Kristur kallar:
"Komið, hvíld að fá,
þér, sem grátið, þér, sem
mæðist þyrnibrautum á."


Höfundur lags: Höf. ókunnur
Höfundur texta: Björn Jónsson

Hefur þú athugasemdir eða tillögur? Sendu okkur póst hér!

© 2020-2024 Kirkja sjöunda dags aðventista
Höfundarréttur texta í eigu viðeigandi höfunda og útgáfuaðila