411 - Áfram, Kristsmenn allir

Áfram, Kristsmenn allir, út í heilagt stríð!
Drottinn fer þar fremstur fyrir sínum lýð,
gyrtur sannleikssverði, sigur veitir oss.
Hátt skal merkið hefja, helgan Jesú kross!

Áfram djarft og dugum, Drottinn kallar oss
hátt skal merkið hefja, helgan Jesú kross.


Líkt og voldug liðsveit lýður Drottins fer,
þar sem guðsmenn gengu, göngum líka vér,
ein í sama anda, ein í von og trú,
síst má nokkuð sundra, saman stöndum nú.

Heims þótt veldin hrynji hátign sinni frá,
stendur kristin kirkja kletti föstum á.
Hvorki hel né heimur hnekkt fær Drottins lýð.
Loforð Krists, og lýður, lifir alla tíð.

Áfram lýðir allir! Eflist fylking vor.
Sæmd og sigur veiti sérhvert stigið spor.
Upp með sigurópi, út í heilagt stríð!
Tignum Krist, vorn konung, krossmenn, alla tíð!


Höfundur lags: A. S. Sullivan
Höfundur texta: Pétur Sigurðsson

Hefur þú athugasemdir eða tillögur? Sendu okkur póst hér!

© 2020-2024 Kirkja sjöunda dags aðventista
Höfundarréttur texta í eigu viðeigandi höfunda og útgáfuaðila