404 - Við krossinn

Friðinn í huga mér
heimti ég æ hjá þér,
við krossinn þinn,
ó, Jesús minn.

Hátt yfir heimsins hljóm,
heyri ég fagran óm,
svo undur blítt,
svo milt og þýtt.

Hér lýsir lífsins sól,
dauðinn á ekkert skjól,
hér finn ég styrk
í lífi' og deyð.

Tárin mér þorna' af kinn.
Kristur við krossinn þinn,
ég lýt, mitt líf
er helgað þér.


Höfundur lags: R. Carmichael
Höfundur texta: R. Carmichael - Þýð. ókunnur

Hefur þú athugasemdir eða tillögur? Sendu okkur póst hér!

© 2020-2024 Kirkja sjöunda dags aðventista
Höfundarréttur texta í eigu viðeigandi höfunda og útgáfuaðila