402 - Jesús minn, ég þrái þig

Jesús minn, ég þrái þig
Þú munt koma' og sækja mig.
Biðin er mér orðin löng,
erfið leiðin, grýtt og þröng.
Jesús minn, ég þarfnast þín
þú ert eina vonin mín.

Allt er valt í heimi hér,
hjá þér vera kýs ég mér,
þar hinn sanna frið ég finn,
frelsari og Drottinn minn.
Jesús minn, ég þarfnast þín
þú ert eina vonin mín.

Jesús minn, ég mæni heim
myrkranna úr kalda geim,
synd og spilling særir mig,
sífellt vona ég á þig.
Jesús minn, ég þarfnast þín,
þú ert hjartans svölun mín.

Kom með andans unað þinn,
ástríkasti vinur minn.
Kom þú fljótt, svo fái' ég þig,
fyrst ég veit þú elskar mig.
Jesús minn, ég þarfnast þín,
þú réttlætis sólin mín.


Höfundur lags: J. E. Gould
Höfundur texta: E. Hopper - Þýð. ókunnur

Hefur þú athugasemdir eða tillögur? Sendu okkur póst hér!

© 2020-2024 Kirkja sjöunda dags aðventista
Höfundarréttur texta í eigu viðeigandi höfunda og útgáfuaðila