401 - Jesú Kristi' er kært að fylgja

Jesú Kristi' er kært að fylgja,
kært að treysta boðum hans.
Hann er lækning, ljós og kraftur,
líf og andi sérhvers manns.

Hann er kóngur konunganna,
kóngur alls, sem var og er,
allra heima, allra manna,
einum honum kóngstign ber.


Út frá hæstum himna sölum
heilagur og sannur, einn
til að frelsa fallinn heiminn
fór hann lýtalaus og hreinn.

Himinsanna visku veitti' ann,
vel svo mannkyn fengi' að sjá.
Aldrei vonskubrögðum beitti' ann,
bægði jafnan illu frá.

Smælingjanum öllum ann hann,
einnig þeim, er hæsta ber.
Hina týndu' og föllnu fann hann,
fól þá ljúft í hjarta sér.


Höfundur lags: W. J. Kirkpatrick
Höfundur texta: Jón Hj. Jónsson

Hefur þú athugasemdir eða tillögur? Sendu okkur póst hér!

© 2020-2024 Kirkja sjöunda dags aðventista
Höfundarréttur texta í eigu viðeigandi höfunda og útgáfuaðila