398 - Drottinn vakir

Drottinn vakir, Drottinn vakir
daga' og nætur yfir þér.
Blíðlynd eins og besta móðir
ber hann þig í faðmi sér.
Allir þótt þér aðrir bregðist,
aldrei hann á burtu fer.
Drottinn elskar, drottinn vakir
daga' og nætur yfir þér.

Löng þá sjúkdómsleiðin verður,
lífið hvergi vægir þér,
þrautir magnast, þrjóta kraftar,
þungt og sárt hvert sporið er,
honum treystu, hjálpin kemur,
hann af raunum sigur ber.
Drottinn læknar, drottinn vakir
daga' og nætur vfir þér.

Þegar freisting mögnuð mætir,
mælir flátt í eyra þér,
hrösun svo þig hendir, bróðir,
háðung að þér sækja fer,
vinir flýja, æðrast ekki,
einn er sá, er tildrög sér.
Drottinn skilur, drottinn vakir
daga' og nætur yfir þér.


Höfundur lags: G. Wennerberg
Höfundur texta: Sigurður K. Pétursson

Hefur þú athugasemdir eða tillögur? Sendu okkur póst hér!

© 2020-2024 Kirkja sjöunda dags aðventista
Höfundarréttur texta í eigu viðeigandi höfunda og útgáfuaðila