390 - Fundið hef ég frelsið sanna

Fundið hef ég frelsið sanna,
frelsara minn Jesú Krist,
æðsta vonin allra manna
og æðsta gleðin síðst og fyrst.

Jesús er mín gæfa‘ og gleði,
gleðin sanna‘ og kóngur vor,
allt frá honum hef ég þegið,
honum gef ég hvert mitt spor.
Honum einum vil ég heyra
hjartans vini alla tíð
helgast honum meira‘ og meira
meistaranum ár og síð.


Fegurð lífsins hátt er hafin,
horfið allt sem ógnar frið,
guðlegum er geislum vafið
og gullið verður jarðlífssvið.

Hann mér gefur vit og vilja,
visku þá, sem aldrei þver,
ljúft er bæði‘ og létt að skilja
þá leið, sem Jesús ætlar mér.

Dásamlegur dýrðarljómi
dvelur nú í minni sál,
dapurlegur finnst ei drómi,
því Drottinn er mitt hjartans mál.


Höfundur lags: A. H. Ackley
Höfundur texta: Aðalbjörg Magnúsdóttir

Hefur þú athugasemdir eða tillögur? Sendu okkur póst hér!

© 2020-2024 Kirkja sjöunda dags aðventista
Höfundarréttur texta í eigu viðeigandi höfunda og útgáfuaðila