384 - Gefðu gætur að Jesú

Ef sál þín er sorta um vafin
og sér hvergi ljósbjarma hér,
þá líttu til lausnarans blíða,
því ljósið sitt gefur hann þér.

Gefðu gætur að Jesú,
á Golgata‘ er fyrir þig dó, þá mun
heimsins glaumur þér gleymast brátt,
gleði himnesk þér veitast og ró.


Frá dauða til lífs hann þig leiddi
og leiðina opnaði hér
með sigri á syndanna veldi,
og sigurinn veitir hann þér.

Hann orð getur aldregi brugðist,
um eilífðir stendur hans ráð,
því boðaðu helsærðum heimi
hans himnesku, frelsandi náð.


Höfundur lags: H. H. Lemmel
Höfundur texta: Jón Hj. Jónsson

Hefur þú athugasemdir eða tillögur? Sendu okkur póst hér!

© 2020-2024 Kirkja sjöunda dags aðventista
Höfundarréttur texta í eigu viðeigandi höfunda og útgáfuaðila