30 - Guðs kirkja er byggð á bjargi

Guðs kirkja er byggð á bjargi,
en bjargið Jesús er,
hún er hans undrasmíði,
sem alla dýrð hans ber.
Af vatni, orð' og anda
hún öðlast hefur líf,
og sett á öllum öldum
sem allra þjóða hlíf.

Í hennar háu sölum
býr heilög, frelsuð drótt,
í trú og einum anda
hún á sinn mikla þrótt.
Þar rúmast allir inni,
með einum hug og sál,
og sérhver kynslóð sést þar
og sérhvert heyrist mál.

Hún lýst er upp með ljósi,
sem lýsir út um heim,
í nákalt niðamyrkrið og næturskuggans geim.
Á ljós það lýðir stefna
sem líkn og sannleik þrá,
þar rúm er öllum reiknað,
sem ratað þangað fá.

Og þar er gott að þreyja,
því þrennur Guð og einn
þar vakir öllum yfir,
svo ekki glatist neinn,
sem þar í trú og trausti
sér tryggir samastað,
og flýr úr syndafjötrum
í frelsisvígið það.


Höfundur lags: S. S. Wesley
Höfundur texta: Friðrik Friðriksson

Hefur þú athugasemdir eða tillögur? Sendu okkur póst hér!

© 2020-2024 Kirkja sjöunda dags aðventista
Höfundarréttur texta í eigu viðeigandi höfunda og útgáfuaðila