374 - Mun Jesús þekkja?

Mun Jesús þekkja hvert þrautaspor
og þrenging, er sverfur að,
hverja sára raun, er ég líð á laun,
mun lausnarinn vita um það?

Ó, já, hann veit, minn vinur
veit svo vel, hvar skugga ber á.
Er neyðin mætir, hann bölið bætir
og best mig annast þá.


Mun Jesús sjá mína angist,
er við efa ég berjast má?
Þegar myrkvast leið, þegar nálgast neyð,
má hans náð ég fulltreysta þá?

Mun Jesús þekkja mitt stranga stríð,
er steðjar mér freisting að?
Er mín vöknar kinn og ei frið ég finn,
mun frelsarinn vita um það?

Og þá minn kærasta kveð eg vin
og kramin mín sála er,
já, er enginn veit, hve mín hryggð er heit,
ó, sú huggun Jesús það sér.


Höfundur lags: J. L. Hall
Höfundur texta: Elínborg Guðmundsdóttir

Hefur þú athugasemdir eða tillögur? Sendu okkur póst hér!

© 2020-2024 Kirkja sjöunda dags aðventista
Höfundarréttur texta í eigu viðeigandi höfunda og útgáfuaðila