371 - Líkt og tré á lindarbakka

Líkt og tré á lindarbakka
líf mitt blómgast Jesú hjá.
Allt ég honum á að þakka,
aldrei dauðann mun ég sjá.

Bifast mun ég ei.
Brothætt sálarfley,
bundið fast við bjargið alda,
bifast getur ei.


Kringum mig þá öldur æða,
ég sé Jesú benda mér,
gegnum storminn, hátt til hæða
heim á leið til Guðs ég er.

Þegar hjarta sorgin særir,
sólarljósið byrgja ský.
Drottins náð mér djörfung færir,
dagur rennur upp á ný.

Þegar Krist í lífsins Ijóma
líta fæ ég himnum á,
þá mun sigursöngur hljóma,
sál mín fagna Guði hjá.


Höfundur lags: A. H. Ackley
Höfundur texta: Pétur Sigurðsson

Hefur þú athugasemdir eða tillögur? Sendu okkur póst hér!

© 2020-2024 Kirkja sjöunda dags aðventista
Höfundarréttur texta í eigu viðeigandi höfunda og útgáfuaðila