370 - Lífs um braut

Lífs um braut mig leiðir Jesús,
líknin hans og náð mér skín.
Hæst ég met minn herra Jesú,
hann er sálargleði mín.

Lífs um braut mig leiðir Jesús.
Líknin hans og náð mér skín
gegnum lífið, gegnum dauðann
Guðs að stól, þar ljós ei dvín.


Áður mjög ég unni heimi,
allt mitt ráð var fest við hann.
Glaður heimsins hlekki braut ég,
hjarta mitt þá Jesús vann.

Þegar beiskar sorgir særa,
sárar kenndir auka tár,
beint til himins bjartra sala
bendir Jesús líknarhár.

Þótt mig heimur hæði, smáni,
hverfi samhygð lífs um stig,
já, þótt gleðin gylli brána
góður Jesús leiðir mig.


Höfundur lags: G. C. Tullar
Höfundur texta: Jón Jónsson frá Hvoli

Hefur þú athugasemdir eða tillögur? Sendu okkur póst hér!

© 2020-2024 Kirkja sjöunda dags aðventista
Höfundarréttur texta í eigu viðeigandi höfunda og útgáfuaðila